Friday, September 15, 2006
Slímseta

Erna... fantastico! says:
Það er ákvæði í jónsbók sem fjallar um slímsetu eða þegar að óboðinn gestur sest að of lengi og er almennt uppáþrengjandi.
Ella | says:
HAHAHA
Erna... fantastico! says:
þetta fólk sem slímsest hefur minni réttarvernd en annað fólk og má skv. ákvæðinu beita ofbeldi upp að vissu marki
Ella | says:
hahahhaha
Erna... fantastico! says:
ég gat bara ekki hætt að hugsa um hvað þér myndi finnast þetta fyndið
Ella | says:
HAHAHA ómægod
Erna... fantastico! says:
ég ætla að slímsetjast mikið á næstu dögum
Ella | says:
þetta er það fyndnasta í heimi
Svona er nú interesant og spennandi að eiga skemmtilega lögfræðivinkonu sem getur sagt manni frá fyndnum lögum og asnalegum staðreyndum!
Til frekari útskýringa skal kíkja á "Erna&Jensen" og lesa um slímsetu... ég get bara ekki hætt að hlæja að þessu.
Note to self: Slímsetja alla þá sem ekki hafa það í sér að ofbelda mig!
(20) comments
Thursday, September 07, 2006
Eyallíjúbba!

Ahh hvað það var nú samt gott að vera að vinna í sumar og ræktast og fara út að hjóla (believe it or not) og fara til útlanda og vera bara almennt að slæpast eitthvað. Það er voða næs! Og húú hvað það var gaman út á Spáni. Ætla ekki að segja neitt meir, það var bara ógeðslega gaman!
Annars bjó ég mér til krumpuegg um daginn. Og ég komst að því að sum brögð eiga bara vel saman. Eins og krumpuegg og tómatsósa. Eða bara egg almennt og tómatsósa. Ís og súkkulaði er góð blanda. Ís og bananar og/eða jarðaber líka. Heitar jólasmákökur (nb -> jólasmákökur) og köld mjólk... mmmhmmmm!
Maður borðar td. ekki ís með appelsínusafa. Og aldrei, aldrei bursta tennurnar og borða appelsínu eftirá! Það eiga einhver hræðileg efnaskipti sér stað á þessum tímapunkti!
(13) comments