<$BlogRSDURL$>

Monday, May 30, 2005

Fyrri líf... 

Mér var bent á þessa síðu um daginn.
Þessi síða hefur að geyma ýmislegt misskemmtilegt, próf og allskonar tímaeyðslu. Mér var hinsvegar bent á link sem heitir Fyrri líf og er vinstramegin á þessum annars tilgangslausa vef. (fyrir utan súkkulaðiprófið auðvitað)


Hér eru niðurstöðurnar mínar:

Ég veit svo sem ekki hvað þér finnst um það...en þú varst karlmaður í þinni síðustu tilvist.
Þú fæddist í síðasta lífi á stað nálægt Frakklandi á því herrans ári 1400. Þú starfaðir sem: bankastjóri, okurlánari, peningalánari og dómari.

Hér er stutt lýsing á þér og högum þínum í síðasta lífi:
Persónuleiki þinn var dulúðugur bóhem, hæfileikaríkur með auðugan skilning á fornum tungumálum. Þú varst göldrum gæddur og gætir hafa verið í þjónustu myrkravaldanna.

Hvaða skilaboð færir fyrra líf þér til þessarar jarðvistar?
Þín skilaboð eru: Þitt verkefni er að læra að treysta umheiminum. Hafðu einnig að markmiði að mennta þig frekar og kynna þér andleg efni.


Og þar hafiði það. Ég var ógeðsleg frönsk karlremba (sé ég fyrir mér) sem starfaði sem dulúðlegur bóhem bankastjóri, dómari myrkravaldanna í frístundum, peningapúki mikill og göldróttur í þokkabót.
Ég ætla að skíra sjálfan mig Jacques.

(5) comments

Tuesday, May 17, 2005

Verkefnið er búið....... 

Já, þriggja vikna lokaverkefnið mitt er búið. Þetta er búið að vera stór og feit törn og síðustu 3 dagarnir voru svakalegir.. en nú er það yfirstaðið YAAYYYY!! Ég svaf 4 tíma í fyrrinótt og svo var vakið til klukkan 12 í dag því þá dó ég og var að ranka við mér núna, kl er 22:00 og ég er alveg að fara að sofa aftur!

Andrúmsloftið í þessum verkefnum verður alltaf jafn súrt og því til staðfestingar eru hérna tveir tölvunördabrandarar sem voru framkvæmdir á meðan verkefni stóð og Jakobar setti á síðuna sína.. þeir eru bara svo asnalegir :D

Mamma þín varð til vegna allra þeirra mömmubrandara sem þurfti að borga fyrir í verkefninu. Metnaðurinn fyrir því að finna mömmubrandara var orðinn frekar mikill...

Tilvik af klasa var nú eiginlega bara eitthvað sem við rákum augun í og var frekar fyndið, svo varð það bara ennþá fyndara þegar þetta kom á b2 sem "Tölvunördabrandararnir verða nú varla grófari en þetta".

Ahh good times... jæja, góða nótt og sjáumst næst þegar ég vakna. Sem verður væntanlega á fimmtudaginn í næstu viku :)

(5) comments

[Top]