<$BlogRSDURL$>

Thursday, November 24, 2005

AHHHHH..... 

Prófin eru búin!!! BÚIN SEGI ÉG!!
Ég er hérmeð frjáls í viku.. þeir sem vilja tala við mig til þess eins að heyra gleði og hamingju, eins og Erna ;)... ahhh, prófin eru búin!

:D

(5) comments

Wednesday, November 16, 2005

Allt til að losna við lærdóm .. 

Jæja, gerið upp hug ykkar.. fel þetta mál alfarið í ykkar hendur!

MyBlog eða blogspot hið svarta með bleika blóminu?

Hafið til 23. nóv til að ákveða ykkur! Stýrikerfi, here I come!

(4) comments

Tuesday, November 15, 2005

Djöfull eru próf æðisleg!! 

Mitt fyrsta próf er yfirstaðið. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða, það eru jólapróf hjá mér núna og ein önn í viðbót að klárast!! Gekk samt ofboðslega vel í morgun sem er einstaklega gleðileg fyrstaprófstilraun! Merkilegt nokk samt að þegar ég var í skólanum gat ég ekki beðið eftir því að komast heim og geta bara lært fyrir próf... núna eru prófin komin og ég vil komast í verkefnið sem fyrst.. ætli ég deyi ekki bara í þessu blessaða verkefni?
Get samt ekki beðið þar til 23. þegar prófin klárast. Fæ ég 5 daga frí í leti og svefn.. ætla mér að nýta það vel og byggja upp mikið af orku og nammiforða fyrir 3 vikna aðventunámskeiðið mitt.
Og svo koma blessuð jólin!


Já.. ég blótaði í titlinum!!

(5) comments

[Top]