<$BlogRSDURL$>

Friday, September 15, 2006

Slímseta 


Erna... fantastico! says:
Það er ákvæði í jónsbók sem fjallar um slímsetu eða þegar að óboðinn gestur sest að of lengi og er almennt uppáþrengjandi.

Ella | says:
HAHAHA

Erna... fantastico! says:
þetta fólk sem slímsest hefur minni réttarvernd en annað fólk og má skv. ákvæðinu beita ofbeldi upp að vissu marki

Ella | says:
hahahhaha

Erna... fantastico! says:
ég gat bara ekki hætt að hugsa um hvað þér myndi finnast þetta fyndið

Ella | says:
HAHAHA ómægod

Erna... fantastico! says:
ég ætla að slímsetjast mikið á næstu dögum

Ella | says:
þetta er það fyndnasta í heimi


Svona er nú interesant og spennandi að eiga skemmtilega lögfræðivinkonu sem getur sagt manni frá fyndnum lögum og asnalegum staðreyndum!
Til frekari útskýringa skal kíkja á "Erna&Jensen" og lesa um slímsetu... ég get bara ekki hætt að hlæja að þessu.

Note to self: Slímsetja alla þá sem ekki hafa það í sér að ofbelda mig!

Comments:
össssss....einu sinni þekkti ég litla herbergis-slímsetu og fann hina fullkomnu lausn til að losna við hann, senda hana eftir kóki! aha, það er það eina sem að virkar á svona slímsli - eins og kryptónite á súpermanns :-)

u píps are funny!

-dossa
 
Svo þegar slímsetan kom með kókið var búið að læsa hana úti!
Grátandi frek slímseta með kók - hvað er betra?

:D
 
hmm já gildir þetta ákvæði nokkuð ennþá, maður lendir nú af og til í svona slímsetum.

Dómari : Verjendur rísið,
Dómari : Hefur sakborningur eitthvað meira um málið að segja?
Ég : En en, hann var slímseta
 
Ég ætla að nota þetta orð eins mikið og ég mögulega kemst upp með!
 
Slímseta... Hljómar eins og einhver líkamsvessi sem hefur verið skilið eftir á klósettsetu.
 
slímsetur eru einmitt ógeðslegir klósettvessar... flestar þeirra!
 
Já einmitt.. það er tekið sérstaklega fram í ákvæðinu.
 
Haha! Ella klósettklessa! Vá, þetta rímar...næstum því...eða ekki.
 
Þetta er þekkt vandamál hjá mér :(

I just cant help it!
 
Þessi mynd minnir á slíminn úr Dragon Warrior/Quest rpg leiknum frá Japan.

Og já, ég er nörd... -_-'
 
Dragon Quest? Kannski eftir Toriyama Akira? ;) Var að klára síðustu Dragonball (þ.e. meðtalið Dragonball Z) bókina fyrir mánuði síðan. Badasss! Mig langar líka að breyta fólki í nammi og sprengja plánetur.
 
tja....sonnaereddanú skrítið---
Hann Butraldi brunnmígill tók slímusetur hjá öldruðum hjónum vestur á fjörðum og sat yfir þeim heilan vetur,að mig minnir.Hann launaði þeim síðan viðurgjörninginn með því að drepa undan þeim mjólkurkúna og spræna í vatnsbólið þeirra.Þorgeir Hávarsson slaktaði svo síðan Butralda þessum,ef minnið svíkur ekki.Lesið um slímusetur fornmanna í Gerplu eftir vort einasta Nóbelsskáld.Brunnmíglar eru vondir míglar.
 
ég lýsi frati mínu áetta blogg...það ritskoðar greinilega
 
Gulmundur er að gera mig geggjaða!Frá því á laugardaginn er hann búinn að sálga
a.m.k.sjö fuglum-helvítið kemur með þá inn og flakar og roðdregur undir
borðstofuborði.Hann kom með einn spörrann bráðlifandi inn og ætlaði að leika
sér aðeins við hann-ég elti báða kettina;sem eltu fuglinn-handsamaði síðan
morðingjahyskið og henti því inn á bað og hóf eftirför eftir fuglinum sem flaug
æpandi og hljóðandi um alla íbúð meðan að kattarvibbarnir spangóluðu inn á
baði-handsamaði loks fjaðraskúmið sem launaði mér lífgjöfina með því að gogga í
mig og skíta í lófann á mér áður en hann hraðflaug með skelfingaröskrum út í
guðsgrænan laugardaginn.Já,það er gleði að eiga gæludýr,jamjam.Ég er búin að
setja 3 bjöllur á loðsvínið,en dugar ekki til.Hann er settur í stofufangelsi á
daginn,þangað til að hægist um í fuglamálum.
 
HAHAHAHA... loðsvínið og fjaðraskúmið!

Nei, það er annaðhvort að þykjast vera dauður eða berjast sem mest þú mátt þegar maður heldur að dauðinn sé á næsta leiti!
Þetta hefur greinilega verið einhvernskonar hermannafugl eða sérsveitarskúm... flest skúmin sem koma inn til okkar fá hjartaáfall í baðinu eða finnast undir sófa!
 
Þetta blog er búið að vera svo lengi hér að það er orðið slímseta.
 
haha :D

Já það er rétt... ég hef bara svo litla löngum til að breyta því ákkúrat núna! Það verður því bara að slímsetja í smá tíma í viðbót, amk fram yfir Microsoft og fram yfir helgina!

sliime
 
Eldingar og endaþarmar!

Króatísk kona er á batavegi eftir að hafa fengið eldingu í munninn, sem fór í gegn um líkama hennar og út um endaþarminn.

Að sögn netmiðilsins ananova. com var konan að bursta í sér tennurnar, við vatnshana utan dyra, þegar eldingunni sló niður. Hún segir að sársaukinn hafi verið ólýsanalegur meðan hún fann eldinguna fara í gegnum líkama sinn. Eftir það muni hún lítið.

Mitt innskot:skrítið að hún muni yfirleitt hvað hún er og heitir!Stærsti skráði fretur mannkynnssögunnar!FAAAAAAAAAART!


Konan, sem er 27 ára gömul var flutt á sjúkrahús þar sem gert var að brunasárum á báðum endum. Læknar segja að þetta sé vissulega furðulegt atvik, en ekki ómögulegt.

Þeir segja að ástæðan fyrir því að eldingin fór ekki niður í fætur konunnar, og þaðan út, sé sú að hún hafi verið í gúmmísandölum. Því hafi eldingin fundið aðra útgönguleið. Ef hún hefði ekki verið í sandölunum hefði hún sjálfsagt látið lífið. Menn verða svo að nota eigið ímyndunarafl til þess að finna nýtt gælunafn á þessa konu.

Hauj allesammen!Samkeppni um nafn á þessa eld(ingar)hreinsuðu konu!

Mitt tillag:þrumuþarmur




Til baka
 
Ætli Storm úr X-Men (Halle Berry í myndunum) prumpi einhverju álíka?
 
Sojablogg

-dossa
 
Post a Comment

[Top]