<$BlogRSDURL$>

Wednesday, October 10, 2007

Hardkor staðreyndir 

Hafið þið tekið eftir því að í hvert skipti sem maður fær sér kínamat.. og það vill svo til að tilvonandi kínamatur sé kjúklingaréttur, þá er alltaf eins og kínamats-búa-tilararnir hafi notað rassinn á kjúklingnum, skinnið milli tánna nú eða endann á stélinu (sem btw. er ekki mikið kjöt á). Nú er ég ekki að gera lítið úr kínamats-kjúklingaréttum, og nei, ég er ekki vön að stúdera kjúklingarassa, en kjötið er í öllum tilfellum krumpað og í hverjum einasta rétti leynist eitthvað gúmmíkennt!

Svo komst ég líka að nokkuð mögnuðu í sumar. Sveppir, venjulegir útisveppir, hvernig sem er í laginu... ef það er sveppur einhvernstaðar í augsýn þá þarf sá hinn sami og sá sveppinn að eyðileggja hann með eins ofsafengnum hætti og dramatík og hugsast getur. Ég hef meira að segja staðið sjálfa mig að þessu, að geta ekki ráðið við mig, hlaupa í átt að sveppahrúgu og sparka sveppunum eins langt og fast og ég get.
Ég held að sveppir séu í útrýmingarhættu! Það skipti ekki máli hvert ég fór í sumar, það voru sveppahræ á öðruhverju götuhorni. Stundum voru meira að segja sveppahræ á stöðum sem einungis liprustu og klókustu sveinar og yndismenni, sem tala í gátum og leysa vandamál heimsins á hverjum degi, kæmust að. Mikill metnaður lagður í sveppatremma!
Svo er ekki nóg að trampa bara á sveppunum, það þarf helst að sprengja þá upp og skilja eftir 3ja metra radíus af sveppaleifum á slysstað.


Ég verð alltaf að hafa allar myndir hægramegin ... ergo, mynd hér til hægri!

Bumbubúinn hennar Þorbjargar var líka að kíkja í heiminn. Til lukku í krukku :)

Fullt að gerast hjá fullt af fólki, og fullu fólki, und októberfest um helgina.
Ég og Erna munum án efa brillera í bjórsölu og hattamálum! Tala nú ekki um yfirskeggin!

Comments:
Gæti litli bumbubúinn verið eitthvað sætari maður vá! Eggjahljóð eggjahljóð jingle all the way!

Yfir í aaaallt annað:
Bjór og skegg maður! Yeah!!

Annars var þessi svepparitgerð þín frekar samhengislaus steypa ;)en ég er samt sammála.. þegar ég sé svepp langar mig annað hvort að fylla hann af beikoni og osti og grilla hann eða bara sparka hann í sveppahræ.

Erna ÚT
 
hahahha.. svona gerist þegar maður er úldinn, ósofinn og spenntur, all at the same time.. í vinnunni!

Þá kemur út sveppasteypa! Annars er hugmyndin um fyllta sveppi töluvert betri en misþyrming á sveppum.

Elín INN
 
OMÆGOD, ég er frægur...... ég tók þátt í þessu samtali ÁÐUR en það varð að bloggi hjá HERR ELLU $$$$$$$$
 
Já, það er alltaf gaman að rústa sveppum. Sérstaklega stórum og feitum.

En þá er maður reyndar að skemma kvöldmatinn fyrir útlendingunum sem tína þá á Miklubrautinni og öðrum góðum stöðum.
 
Já Doddi, svona er að þekkja mig. Ég er náttúrulega svo geðveikt æðisleg... dææææs! Og þú auðvitað djöðveikt frægur núna. Sveppadodd

Það er allt í lagi Hannes, þetta eru útblástursbústnir vondsveppir sem eiga ekkert annað skilið en tortímingu! Við erum að bjarga mannslífum.
 
Jamms, frægur by association. !!!
 
Post a Comment

[Top]