<$BlogRSDURL$>

Tuesday, March 07, 2006

It's alive... IT'S ALIVE!!! 

Jólagjafirnar í ár voru af ýmsum toga! Þar á meðal fékk ég pakka sem innihélt búnað til að búa til mínar eigin kjötætuplöntur. Ójá.....KJÖTÆTUPLÖNTUR!

Strax eftir jólin sáði ég fínu fræjunum mínum í þar til gerða gróðurmold í afskaplega hátæknivæddu "growing dome-i" sem er átthyrnt og í laginu eins og gimsteinn. Til þess að carnivorurnar mínar yrðu nú ekki leiðar fylgdu með "3 bog buddies", sem eru tvær litlar eðlur og einn ormur, sem liggja á mjög vel völdum stöðum í dome-inu. Til að fullkomna meistaraverkið sáði ég yfir moldina bláum "swamp-rocks" til að gefa þessu náttúrulegan blæ. Svo var bara að bíða og vona í 8 - 10 vikur eftir því að eitthvað sniðugt færi að gerast og viti menn!! My baby!!

SJÁIÐI BARA... my evil plant! Það geislar alveg af henni illska og ógleði.
















Ég verð án efa einn farsælasti kjtötætuplöntuframleiðandi Íslands.. ég gef þessu svona 4 - 6 ár og verð komin með mitt eigið kjötætuplöntu fyrirtæki! Ég mun rækta hræðilegustu og grimmustu kjötætuplöntur sem sögur fara af!

Þetta er bara byrjunin. Þessi hræðilega planta sem er byrjuð að myndast á eftir að stækka og ég verð farin að fóðra hana með nautahakki í sumar, kótilettum og partýpylsum.
Gæti jafnvel hrætt mormóna og póstkarla í burtu með þeim!

Be afraid... be very afraid!!

Comments:
Hahhaha ... hvað er að gerst, kjötætu hvað? :P
 
HAHAHAHAHAHAHAHAHA!
*andköf*
AAAAAAHAHAHAHAHAHA!
Þetta er geðveikt!
 
hahahah jesús minn... og geðveikin skín líka alveg úr augunum á þér...

ég spái því að eftir 2 ár verði Elín byrjuð að fórna vinum sínum í kjaft þessara plantna :-|
 
hehe... snilld. Ég skal kaupa hlutabréf í kjötætuplöntu fyrirtækinu þínu - þetta mun þokkalega slá í gegn og ég verð milljarðamæringur múhahaha!
 
YÖSS... góðar undirtektir!
Ég gef ykkur öllum anga af villiplöntunum mínum og svo skulum við taka yfir heiminn!!!

mormóns.. look out!
 
Ef þig vantar stað til að hakka niður vini þína til að fóðra þessi yndi, þá hef ég aðgang að STÓRRI hakkavél og mun glaðlega hjálpa til við að fela leifarnar.
--Doddinn
 
Já.. ég þarf pottþétt svoleiðis tæki!
 
FEEEEEED ME SEYMORE......feeeed me all night long!

Þá spyr ég líka, hvar er póstkallinn sem að var búin að vera að angra ykkur (með því að setja alls konar rangann póst í lúguna) - hann hefur ekki sést í LANGANN tíma, ha! og djöflabörnin, ég sá nú eitt þeirra haltra um hvefið og greinilega búið að éta af því löppina!

you evil genious you! ég kem sko ekki með kúlu í heimsókn til þín, nei nei nei!

you are the queen of all evils, yes yes!







....ég er hræddur....
 
It wantses sweetmeatses, precioussss! MEATSESSSSSS!
 
Hahahahaha eins gott fyrir þessa steina að farað passa sig, tekur þig mjög vel út sem norn líka ;)
 
I am the evil genious... One plant to rule them all!
 
Borða þessar plöntur samt ekki bara flugur og annað eins smotterí?

(ekki að mig langi að gera lítið úr illsku þessara plantna)

-Dagur
 
neineinei Dagur minn... neineinei!

Þær borða bara hrátt kjöt og lifur!

... kannski einstaka feitar fiskiflugur og geitunga!
*hóst*
 
Nei, núna gekkstu yfir strikið, Elín! Það er ljótt að kalla Dag feita fiskiflugu! ;)
 
heyyy... you twist my words!
 
Híhíhí. Enginn tvistar betur en ég... nema kannski Travolta og Thurman.
 
Post a Comment

[Top]